29.9.2023

Kjördæmadagar 2.–5. október 2023

Kjördæmadagar eru 2.–5. október og verða því engir þingfundir á Alþingi þá vikuna. Kjördæmadagana nýta þingmenn til að fara út í kjördæmi sín og hitta kjósendur, sveitarstjórnafólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri.

Næsti þingfundur verður haldinn mánudaginn 9. október samkvæmt starfsáætlun Alþingis.

Kjordaemi-fra-2003